laugardagur, desember 02, 2006

Bensín

Magnað hvað hálft kíló af Homeblest getur fleytt manni langt þegar tíminn er of naumur til að hægt sé að borða í Perlunni eins og venjulega.

þriðjudagur, október 10, 2006

Klaufi

Var í Portúgal í síðustu viku. Fékk í hendur lykla að íbúð númer 415 í blokk. Og leiðbeiningar: "Walk to the end of...turn left...find lift...up to third floor...past 305...then you see it". Var sem sagt illa sofinn og þreyttur og nennti mátulega að hlusta á leiðbeiningarnar, jánkaði bara og hugsaði að þetta gæti varla verið mikið mál. Eftir að hafa ráfað í 20 mín. með farangurinn í eftirdragi um mikla og myrkvaða rangala fann ég íbúð 415. Lyklarnir pössuðu ekki. Aftur í móttökuna en hún var þá lokuð. Gekk á næsta veitingahús. Var vísað á næsta bar. Bareigandinn hringdi í mann. Sem hringdi svo aftur í hann og sagði að annar maður myndi hringja. Hann hringdi svo og kom. Sami maður og lét mig fá lyklana fyrr um kvöldið. Hann fylgdi mér að íbúð 415 með bros á vör. Allt annarri íbúð 415 en ég hafði fundið!

Færi sem sagt Pataca bareiganda og manninum í móttökunni bestu þakkir fyrir hjálpina.

mánudagur, september 18, 2006

commenting and trackback have been added to this blog.

commenting and trackback have been added to this blog.

mánudagur, september 11, 2006

Heimur batnandi fer

Á mbl.is sá ég að það er minnst 10 þús. kr. sekt við því að henda rusli á almannafæri og sagt er að lögreglan taki fast á slíkum brotum.

Veit ekki. Að henda rusli er víst brot á lögreglusamþykkt. Held samt að það sé enn meira brot á siðareglum sem mætti kalla sjálfsagða mannasiði. Sama gildir eiginlega líka um að gefa ekki stefnuljós (kannski alvarlegra brot). Það er reyndar alveg óskaplega skrýtið hvað þetta tvennt og ýmislegt fleira í svipuðum dúr vefst fyrir mörgu fólki.

En nú ætlar lögreglan sem sagt að ganga í málið. Í dag sá ég líka (stefnu)ljós í myrkrinu. Ég varði vitni að því í tvígang þegar bílstjóri gaf stefnuljós eins og hann ætlaði að skipta inn á mína akrein. Ég ætlaði að gefa báðum séns. Annar keyrði svo bara áfram um langan veg án þess að skipta. Hinn beygði í hina áttina. Við verðum samt að gefa þeim prik fyrir viðleitnina.

föstudagur, ágúst 25, 2006

Gráu hárin

Við skráningu í sveitakeppni í Reykjavíkurmaraþoni um daginn (bara 10km í þetta skiptið) átti að gefa upp besta tíma og áætlaðan tíma. Munurinn var um 8 mínútur í mínu tilfelli, áætlaði tíminn lengri. Nokkrum dögum eftir þetta steig ég mín fyrstu skref í golfi.

Það mætti því ætla að ég hafi gefist upp fyrir Elli kerlingu. Það er ekki rétt. Ég er bara með Gráa fiðringinn ennþá. Það eru sem sagt uppi hugmyndir um að skella sér á byrjendanámskeið í karate (o.fl.). Verst að það stangast á við bingóið.

þriðjudagur, ágúst 08, 2006

Misheppnuð taktík

Frétt úr Morgunfréttablaðinu 32. júlí:

Landsvirkjun hefur ákveðið að hætta við virkjun að Kárahnjúkum. Að sögn upplýsingafulltrúa fyrirtækisins var þessi ákvörðun tekin eftir að hlustað hafði verið á athugasemdir náttúruverndarfólks á svæðinu. "Það voru alls 7 manns sem hlekkjuðu sig við jarðýtur og og lögðust fyrir framan vörubíla og æptu slagorð um að við værum að drekkja landinu í þágu amerískra auðhringa". Eftir að stjórn Landsvirkjunar fór yfir þessar athugasemdir þótti ljóst að allt virkjunarbrölt er tómur misskilningur. "Það hafði bara enginn séð þetta í stóru samhengi fyrr en mótmælendurnir komu með handjárnin", sagði upplýsingafulltrúinn í samtali við Morgunfréttablaðið. Búist er við afsökunarbeiðni frá Landsvirkjun í kvöld eða á morgun og þegar hefur verið hafist handa við að rífa stíflur.

Æ, það er kannski óþarfi að eyða orðum á þetta. Hvað græðir maður á því að hlekkja sig við jarðýtu? Jafnvel þótt málstaðurinn sé nokkuð góður er ég hræddur um að það taki enginn meira mark á manni hlekkjuðum en óhlekkjuðum. Og það sem verra er; þeir sem berjast fyrir sama málstað án þess að styðja sig við handjárn eru jafnvel líka stimplaðir öfgamenn. Þessi misheppnaða taktík er svo sem ekki bundin við Kárahnjúka (femínistar t.d. ?!!!?).